Útboð á ræstingu í Glerár-, Gilja- og Síðuskóla Fjársýslusvið Akureyrarbæjar, fyrir hönd fræðslu- og lýðheilsusviðs Akur

Fjársýslusvið Akureyrarbæjar hefur boðið út reglulega ræstingu og aðra ræstingu á húsnæði þriggja grunnskóla Akureyrarbæjar. Um er að ræða Giljaskóla, Glerárskóla og Síðuskóla, samtals um 10.500 fermetra húsnæði. Í útboðinu eru innifalin alþrif einu

Útboð á ræstingu í Glerár-, Gilja- og Síðuskóla Fjársýslusvið Akureyrarbæjar, fyrir hönd fræðslu- og lýðheilsusviðs Akur
Mynd: Kolbrun Jonsdottir / Pexels

Fjársýslusvið Akureyrarbæjar hefur boðið út reglulega ræstingu og aðra ræstingu á húsnæði þriggja grunnskóla Akureyrarbæjar. Um er að ræða Giljaskóla, Glerárskóla og Síðuskóla, samtals um 10.500 fermetra húsnæði. Í útboðinu eru innifalin alþrif einu sinni á ári í sumarlokun og aðlögunarfrístund, þar sem fyrstu alþrifin skulu unnin í ágúst 2026.

Gert er ráð fyrir að ræsting hefjist 4. ágúst 2026. Samningur verður til tveggja ára með framlengingarmöguleika til tveggja ára til viðbótar, eða mest til 10. júní 2030. Vettvangsskoðun verður haldin 27. maí kl. 10:00 og hefst í Síðuskóla. Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en kl. 11:15 þann 19. júní 2026. Tilboð verða opnuð sama dag kl. 11:30.

→ Sjá útboð á vef Akureyrar

Heimild: Akureyrarbær

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →