Akrafjallsvegur (51), hringtorg við Akranes: Tvö tilboð opnuð hjá Vegagerðinni
Vegagerðin hefur opnað tvö tilboð vegna hringtorgs við Akrafjallsveg (51) við Akranes. Borgarverk ehf. bauð lægst eða 527.440.200 krónur.
Vegagerðin hefur opnað tvö tilboð vegna framkvæmda við hringtorg við Akrafjallsveg (51) við Akranes. Áætlaður verktakakostnaður í verkinu er 617.058.111 krónur.
Borgarverk ehf. í Borgarnesi bauð lægst í verkið með tilboði sínu upp á 527.440.200 krónur, sem er 85,5% af áætluðum kostnaði. Þróttur ehf. á Akranesi bauð 594.220.000 krónur, eða 96,3% af áætlun.
Heimild: Vegagerðin