Afnema takmarkanir á útblæstri kolaorkuvera

Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (EPA) hefur tilkynnt að takmarkanir á útblæstri gróðurhúsalofttegunda frá kola- og gasorkuverum verði afnumdar. Stofnunin telur sig ekki hafa lagaheimild til að setja slíkar reglur.

Afnema takmarkanir á útblæstri kolaorkuvera
Mynd: zimochen / Pexels

Umhverfisstofnun Bandaríkjanna, EPA, ætlar að afnema takmarkanir á útblæstri gróðurhúsalofttegunda frá kola- og gasorkuverum. Takmarkanirnar voru settar í forsetatíð Joe Bidens. Einnig verður komið í veg fyrir að settar verði frekari reglugerðir um losun frá orkuverum.

EPA segir að stofnunin hafi ekki lagaheimild til að setja slíkar reglur. Þetta var tilkynnt á fundi orkuráðherra G20-ríkjanna í Houston í dag.

Lee Zeldin, forstjóri EPA, segir að afnám reglugerða muni gera Bandaríkjunum kleift að koma sér upp nýjum innviðum til að mæta síaukinnni orkuþörf. Þá muni áætlanir EPA spara raforkuiðnaðinum 370 milljónir bandaríkjadala sem annars hefðu farið í að framfylgja reglugerðum.

Raforkuiðnaðurinn ber ábyrgð á nærri fjórðungi alls útblásturs gróðurhúsalofttegunda í Bandaríkjunum. Aðeins er meiri losun frá samgöngum.

Lee Zeldin er fyrrverandi fulltrúadeildarþingmaður sem hefur verið traustur stuðningsmaður Trumps. Hann greiddi meðal annars atkvæði gegn því að staðfesta úrslitin í forsetakosningunum árið 2020.

Zeldin hefur vakið litla hrifningu meðal umhverfisverndarsinna. Í atkvæðagreiðslum greiddi hann oft atkvæði gegn aðgerðum í umhverfismálum. Hann studdi til dæmis afnám laga sem voru sett til að bæta loftgæði.

Zeldin hefur hins vegar stutt frumvörp um að banna olíu- og gasvinnslu út af ströndum Bandaríkjanna og um að kaupa og varðveita land til almenningsnota.

Umhverfis- og lýðheilsusinnar segja hins vegar að afnám reglugerða leiði til milljarða dala kostnaðar vegna lýðheilsutaps og umhverfisskaða. Í tíð Bidens hafði EPA metið að reglurnar myndu hafa í för með sér heildarávinning upp á 370 milljarða dala.

Varaorkuráðherrann Kyle Haustveit sagði í tilefni tilkynningarinnar að Donald Trump Bandaríkjaforse

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn