Afhentu ráðherra 2.511 undirskriftir vegna Kristness

2.511 undirskriftir hafa verið afhentar heilbrigðisráðherra vegna ástands Kristnesspítala, þar sem skorað er á stjórnvöld að bregðast við vandkvæðum spítalans hið snarasta vegna mikils viðhaldsþarfar.

Afhentu ráðherra 2.511 undirskriftir vegna Kristness
Mynd: needpix.com (CC0)

Fyrir hönd velunnara Kristness afhenti María Pálsdóttir heilbrigðisráðherra 2.511 undirskriftir þar sem skorað er á stjórnvöld að bregðast við vandkvæðum spítalans hið snarasta, en þörf er á miklu viðhaldi.

Göngudeild endurhæfingar SAk, sem áður var á Kristnesspítala, er á leið í leiguhúsnæði á Akureyri. Rýma þurfti svæðið sökum myglu í húsnæði spítalans fyrr á þessu ári.

Alma D. Möller tók við listanum af Maríu og sagði við tilefnið að málin væru í skoðun. „Þetta er tvíþætt verkefni. Annars vegar þjónustan [...] og hinn hlutinn er húsnæðið. Það er hópur að störfum til þess að skoða ástandið enn betur og kostnaðarmeta. Sú vinna er auðvitað í gangi og það er ekki tímabært að segja neitt um það. Við þurfum að gæta hagsmuna ríkisins og vöndum okkur við það,“ sagði hún.

Guðjón Hauksson, forstjóri SAk, sagði í samtali við fréttastofu í síðustu viku að þeirra verkefni væri fyrst og fremst að tryggja þjónustuna, sem hefði verið fundinn staður innan sjúkrahússins á meðan annarra lausna er leitað. „Og þar að mínu mati hefur starfsfólk sjúkrahússins á Akureyri lyft algeru grettistaki. Svo er verið að vinna að því að koma göngudeildarstarfseminni fyrir annars staðar hérna á Akureyri.“

Þá fékk Alma einnig í hendurnar opið bréf frá starfsfólki endurhæfingar- og öldrunarlæknaþjónustunnar á Kristnesi þar sem segir að þau séu boðin og búin að tryggja þjónustuna áfram á Kristnesi. Það var Sólveig Pétursdóttir, yfirlæknir endurhæfingar á Kristnesi, sem afhenti Ölmu bréfið.

„Það þarf að kortleggja hvernig endurhæfing verður á Norðurlandi til frambúðar,“ sagði Alma.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn