Ætla að segja upp kjarasamningum nema stjórnvöld grípi inn í

Verkalýðshreyfingin hótar að segja upp kjarasamningum ef stjórnvöld og atvinnurekendur bregðast ekki við erfiðu efnahagsumhverfi. Núgildandi samningar, undirritaðir í mars 2024, hafa ekki staðist væntingar um lægri verðbólgu og vexti.

Ætla að segja upp kjarasamningum nema stjórnvöld grípi inn í
Mynd: Magda Ehlers / Pexels

Verkalýðshreyfingin krefst þess að stjórnvöld og atvinnurekendur axli ábyrgð á erfiðu efnahagsumhverfi og grípi til aðgerða. Annars verði kjarasamningum sagt upp.

Í grein sem sex forystumenn innan hreyfingarinnar skrifa kemur fram að núgildandi kjarasamningar hafi verið gerðir á grundvelli loforða um lægri verðbólgu og vexti, en þau loforð hafi verið brotin.

Samningarnir voru undirritaðir í mars 2024 og gilda út janúar 2028. Hins vegar er heimilt að segja þeim upp í lok mánaðar ef verðbólga mælist yfir 4,7% við næstu verðbólgumælingu, sem væntanleg er 27. ágúst. Allar líkur eru taldar benda til þess að verðbólgan fari yfir þessi mörk.

„Við höfum kallað eftir því að ríki og sveitarfélög skuldbindi sig til að frysta sínar gjaldskrár. Þau hækka gjaldskrár að lágmarki í samræmi við verðbólgu. Þetta verður bara spírall og gerir það að verkum að verðbólgan viðheldur sjálfri sér,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Hún nefnir sérstaklega mikla hækkun hjá Veitum.

Laun samkvæmt kjarasamningum hafa hækkað um 10% frá því samningar voru undirritaðir snemma árs 2024. Á sama tíma hefur verðlag hækkað um 12%. Þá hafa stýrivextir haldist háir.

„Við erum búin að vera með næstum fjögur ár af gríðarháum stýrivöxtum sem virka að takmörkuðu leyti á þann vanda sem þeim er ætlað að virka á. Vextirnir en eru hins vegar að kreista sömu hópana árum saman, einkum þá sem eru með háar húsnæðisskuldir,“ segir Halla.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn