Ætla að meta þörf NATÓ fyrir flugvöllinn í Narsarsuaq

Landsstjórnin og danska varnarmálaráðuneytið hafa sammælst um að halda flugvellinum í Narsarsuaq á Grænlandi tímabundið opnum í minnsta kosti eitt ár til viðbótar. Áætlað er að kannað verði hvort Danir og Atlantshafsbandalagið hafi þörf fyrir völlinn.

Ætla að meta þörf NATÓ fyrir flugvöllinn í Narsarsuaq
Mynd: Tayssir Kadamany / Pexels

Í vor stóð til að hætta allri starfsemi á flugvellinum í Narsarsuaq á Grænlandi eftir 85 ára starfsemi.

En nú hefur verið ákveðið að halda vellinum tímabundið opnum áfram, hið minnsta eitt ár til viðbótar, meðan kannað verður hvort Danir og Atlantshafsbandalagið hafi þörf fyrir hann.

Varnarmálaráðherrann Jeppe Bruus segir að með því gefist tækifæri til að skýra langtímaþarfir danska hersins, NATÓ og annarra bandamanna varðandi nýtingu Narsarsuaq-flugvallar.

Með framlengingu á starfsemi flugvallarins fylgir jafnvirði allt að 851 milljónar íslenskra króna fjárframlag til heimastjórnarinnar frá varnarmálaráðuneytinu.

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í viðtali fyrr í sumar að öruggt mætti telja að Bandaríkin nái yfirráðum yfir Grænlandi áður en kjörtímabili hans lýkur.

Búist er við að stjórnvöld á Grænlandi undirriti samkomulag um aukið samstarf við Evrópusambandið í heimsókn Ursulu von der Leyen forseta framkvæmdastjórnarinnar og danska forsætisráðherrans Mette Frederiksen á morgun.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn