90 rýma hátækni hjúkrunarheimli opnar á Ásbrú sumarið 2028

Nýtt og glæsilegt 90 rýma hátækni hjúkrunarheimili er í smíðum á Ásbrú og áætlað er að það opni sumarið 2028. Verkefnið felur í sér endurbyggingu og stækkun tveggja eldri fjölbýlishúsa við Keilisbraut.

90 rýma hátækni hjúkrunarheimli opnar á Ásbrú sumarið 2028
Mynd: needpix.com / CC0 / Pexels

Framkvæmdir eru hafnar við nýtt og glæsilegt 90 rýma hátækni hjúkrunarheimili á Ásbrú, sem áætlað er að opni sumarið 2028.

Verkefnið felst í endurbyggingu og stækkun tveggja eldri fjölbýlishúsa við Keilisbraut, sem verða tengd saman í eina 6.500 fermetra heild. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun sjá um rekstur heimilisins þegar það tekur til starfa. Icelandic Home ehf. hefur gert leigusamning við íslenska ríkið um húsnæðið.

Hönnun verkefnisins er á lokastigi samhliða undirbúningi framkvæmda. Á upplýsingafundi um verkefnið var lögð áhersla á samstarf einkaaðila, hönnuða, ríkisins og sveitarfélagsins til að mæta brýnni þörf fyrir stóraukið svigrúm í öldrunarþjónustu á Suðurnesjum.

Sigurður Garðarsson, verkfræðingur og verkefnisstjóri, fagnaði því að stjórnvöld hafi kallað einkaaðila að borðinu, sem opni ný tækifæri til hraðari uppbyggingar. Hann benti á að þörfin fyrir fleiri hjúkrunarrými sé mikil í dag og muni aukast verulega á næstu árum og áratugum. Áætlanir ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir að bæta við 400 rýmum á næstu fimm árum, og eru þessi 90 rými á Ásbrú hluti af þeirri tölu. Sigurður sagði að á næstu tveimur áratugum muni hlutfall elstu aldursflokkanna hækka úr 10–12% í um 20% af þjóðinni.

Þorleifur Björnsson, aðalhönnuður og hönnunarstjóri hjá Glóru, kynnti hönnunarlausnina sem fengið hefur vinnuheitið Ásvellir. Hann útskýrði hvernig 5.000 fermetra fyrrum hermannabyggingar verða nýttar og stækkaðar um 1.500 fermetra með nýrri tengibyggingu milli húsanna. Þorleifur tók fram að steyptir útveggir eldri bygginganna séu allt að 30 cm þykkir.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Austurfrétt

Heimild: Austurfrétt

Deila Facebook X LinkedIn