8 þúsund tonn af malbiki

Reykjavíkurborg og Vegagerðin ætla að eyða rúmum 1,6 milljörðum króna í malbikunarframkvæmdir í sumar. Verktakar á vegum Vegagerðarinnar hafa þegar malbikað 80.000 fermetra á höfuðborgarsvæðinu, sem samsvarar 8.000 tonnum af malbiki.

8 þúsund tonn af malbiki
Mynd: Tom Shamberger / Pexels

Reykjavíkurborg ætlar að verja rúmum milljarði króna til malbikunarframkvæmda í sumar. Þá nemur upphæðin sem Vegagerðin, sem sér um viðhald þjóðvega innan höfuðborgarsvæðisins, leggur í slíkar framkvæmdir rúmum 600 milljónum króna, auk 85 milljóna í viðgerðir.

Malbikunarflokkar hafa verið við störf frá því í vor og segir Birgir Blöndahl Arngrímsson, verkefnastjóri hjá Colas Ísland, að vinnan hafi gengið afar vel. „Það er búið að ganga gríðarlega vel í sumar. Við komumst hratt af stað. Veðrið er búið að leika við okkur síðustu viku þó það hafi komið rigning inn á milli. Við erum búnir að malbika tvo þriðju af höfuðborgarsvæðinu fyrir Vegagerðina þannig að þetta skotgengur. Við erum búnir með 80 þúsund fermetra, eða 8 þúsund tonn af malbiki og eigum svona 40 þúsund fermetra eftir,“ segir Birgir.

Birgir nefnir að götur og vegir komi misvel undan vetri og ástandið sé víða slæmt. „Það eru djúp hjólför og þau eru oft komin í gegnum núverandi malbikslag og ofan í það næsta sem segir sig sjálft að það er slysahætta,“ útskýrir hann. Malbikunarframkvæmdir geta valdið mikilli röskun á umferð, þó oft sé reynt að sinna þeim utan háannatíma. Götum er lokað tímabundið og umferð beint um aðrar leiðir. Birgir segir að ökumenn sýni þessu oftast skilning, en ekki alltaf. „Ökumenn hafa alveg komið út úr bílunum og hellt sér yfir starfsfólk okkar á lokunarpóstunum. En það er það versta. Oftast er bara tekið vel í þetta,“ segir Birgir.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →