600 íbúða byggð á að rísa við Köllunarklettsveg

Til stendur að reisa um 600 íbúðir auk hjúkrunarheimilis fyrir eldri borgara næst Köllunarklettsvegi við Laugarnes í Reykjavík. Gera þarf breytingu á aðalskipulagi áður en framkvæmdir geta hafist. Verði Sundabraut í göngum kæmi umferðin upp við hliði

600 íbúða byggð á að rísa við Köllunarklettsveg
Mynd: Kawan Santos / Pexels

Til stendur að reisa um 600 íbúðir auk hjúkrunarheimilis fyrir eldri borgara næst Köllunarklettsvegi við Laugarnes í Reykjavík. Gera þarf breytingu á aðalskipulagi áður en framkvæmdir geta hafist. Verði Sundabraut í göngum kæmi umferðin upp við hliðina á nýju byggðinni.Tillögur að uppbyggingunni voru kynntar á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í liðinni viku.Við Köllunarklettsveg, þar sem nú er iðnaðar- og athafnasvæði, stendur til að reisa nýja byggð. Gert er ráð fyrir um 600 íbúðum, auk hjúkrunarheimilis, leikskóla, veitingastaða, hótels, verslunar og þjónustu.Innan hverfisins er ekki gert ráð fyrir bílaumferð, heldur verða bílastæði neðanjarðar og bílastæðahús yst í byggðinni, næst byggingunni þar sem Góði hirðirinn er til húsa.Þar nálægt er gert ráð fyrir að gangamunni Sundabrautar komi upp, verði Sundabraut í göngum. Vegagerðin bendir á að mikilvægt sé að hafa þetta í huga við gerð aðalskipulags með tilliti til loftgæða og hljóðvistar og mögulegrar breikkunar Sæbrautar.Heildarstærð svæðisins er um 64 þúsund fermetrar. Byggingarmagn verður ríflega hundrað þúsund fermetrar og neðanjarðarsvæði með bílastæðum, hjólageymslum, geymslu-, þjónustu- og tæknirými spannar ríflega sjötíu þúsund fermetra.Hæstu byggingar verða allt að átta hæðir og verða flestar staðsettar næst strandlínunni. Í gegnum hverfið verður grænt svæði og um það bil í miðju þess verður torg með rými fyrir veitingastaði, kaffihús og aðra þjónustu.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn