40 milljarða fiskeldisverkefni Samherja tekur á sig mynd á Reykjanesi
Framkvæmdir við Eldisgarð, stórt landeldisverkefni Samherja á Reykjanesi, ganga samkvæmt áætlun og er gert ráð fyrir að fyrstu laxaseðunum verði tekið í apríl. Verkefnið, sem hefur verið í undirbúningi í sjö ár, mun framleiða allt að 30.000 tonn af laxi á ári þegar því lýkur.
Framkvæmdir við Eldisgarð, risavaxið landeldisverkefni Samherja fiskeldis í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi, ganga vel og eru samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að taka á móti fyrstu laxaseiðunum í nýrri laxeldisstöð Samherja í apríl næstkomandi.
Verkefnið hefur verið í undirbúningi í um sjö ár og er eitt það stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Þegar framkvæmdum lýkur verður framleiðslugetan 30.000 tonn af laxi á ári. Í fullbyggðri stöð verða 66 eldisker sem taka svipað pláss og 110 keppnissundlaugar.
Gunnar Dagur Darrason, framkvæmdastjóri hjá Samherja Landeldi, kynnti verkefnið á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Stærðargráða verkefnisins er gríðarleg, en í fullbyggðum eldisgarði verður framleiðslugetan um 30.000 tonn af laxi. Það er tæplega tífalt stærri framleiðsla en núverandi laxeldisstöð Samherja, Silfurstjarnan, býr yfir.
Til að halda vel utan um framkvæmdina er verkefninu skipt upp í þrjá áfanga þar sem hver áfangi um sig hefur framleiðslugetu upp á um 10.000 tonn af slægðum laxi, eða um 12.000 tonn af óslægðum fiski. Í fullbyggðri stöð verða samtals 66 eldisker og mun heildareldisrýmið mælast um 273.000 rúmmetrar, sem jafngildir rúmmáli 110 keppnissundlauga.
Mannvirkin samanstanda af stoðbyggingum, þremur löngum áframeldisbyggingum og sláturaðstöðu. Hver áframeldisbygging verður um 500 metra löng og flæðir fiskurinn í gegnum allt ferlið frá vinstri til hægri.
Kostnaður við fyrsta áfanga er áætlaður um 40 milljarða króna og er um að ræða mikla innviðafjárfestingu á áður ósnertu svæði. Í þeim áfanga einum verða steyptir um 15.000 rúmmetrar af steypu og lagðir 12 kílómetrar af lögnum. Til að setja hraða framkvæmda í samhengi steypti fyrirtækið úr 300 steypubílum í ágústmánuði.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkurfréttir
Heimild: Víkurfréttir