2,8 milljarða uppbygging hjá Reykjagarði á Hellu

Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir við um 4.000 fermetra nýbyggingu Reykjagarðs á Hellu, en áætlað er að heildarfjárfesting í uppbyggingunni geti numið allt að 2,8 milljörðum króna. Þessi mikla uppbygging mun leiða til þess að starfsemi sem nú

2,8 milljarða uppbygging hjá Reykjagarði á Hellu
Mynd: flickr / CC BY-SA / Pexels

Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir við um 4.000 fermetra nýbyggingu Reykjagarðs á Hellu, en áætlað er að heildarfjárfesting í uppbyggingunni geti numið allt að 2,8 milljörðum króna. Þessi mikla uppbygging mun leiða til þess að starfsemi sem nú fer fram á höfuðborgarsvæðinu flyst á Hellu. Gert er ráð fyrir að húsinu verði lokað í byrjun nóvember og í kjölfarið tekur við innanhússfrágangur og uppsetning vélbúnaðar sem hefst fljótlega eftir áramót.

Guðmundur Svavarsson, framkvæmdastjóri Reykjagarðs, hefur lýst þessari fjárfestingu sem stóru skrefi í starfsemi fyrirtækisins og atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Fjárfestingin er með þeim umfangsmeiri sem einkafyrirtæki hefur ráðist í á síðustu áratugum í Rangárvallasýslu. Guðmundur þakkaði íbúum og sveitarstjórnaryfirvöldum í Rangárþingi ytra fyrir velvild og samvinnu, sem hann sagði forsendu þess að unnt væri að ráðast í atvinnuuppbyggingu af þessari stærðargráðu.

Nýbyggingin rís austan við núverandi húsnæði Reykjagarðs og verður tengd því með sérstakri tengibyggingu. Þar verður komið fyrir hlutun, úrbeiningu, fullvinnslu, pökkun, frystingu, kælum og afgreiðslu, auk úrgangs- og tæknirýma. Samhliða framkvæmdunum verður stór hluti vélbúnaðar endurnýjaður. Til stendur að flytja starfsemi sem nú er rekin með um 25 stöðugildum á höfuðborgarsvæðinu yfir í nýja húsnæðið á Hellu. Þá verður sett upp ný vinnslulína til steikingar og frystingar, en sú vinnsla fer í dag fram hjá SS á Hvolsvelli. Stefnt er að því að starfsemi í nýju vinnslunni hefjist um mitt ár 2027.

Aðalhönnuður hússins er Vigfús Halldórsson hjá Balsa ehf., byggingarstjóri er Þórður Smári Sverrisson hjá Verkmið ehf. og verkefnisstjórn af hálfu Reykjagarðs er í höndum Björns Stefánssonar hjá Gaddstöðum ehf. Þjótandi ehf. annast jarðvinnu við framkvæmdina og BM Vallá framleiðir og reisir steyptar einingar ásamt þakvirki frá Límtré Vírneti á Flúðum.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska

Heimild: Sunnlenska

Deila Facebook X LinkedIn